Ég er hræðileg. Ef Jesper gleymir að logga sig af facebook þá er ég mætt í að lesa hans fréttir. En ótrúlegt að ég geti ekki einu sinni falið það.. ég var óvart búin að like-a 10 x og kommenta 1x á hans nafni. Er búin að eyða sönnunargögnunum.. og gott að Jesper man ekkert url-ið á þetta blog.
Hér er ég að tjekka mig inn á Dalle Valle og að reyna að selja Jesper Foursquare hugmyndina. Gekk ekki eftir !
En náði þó held ég að selja hugmyndina til Nönnu og Árna. Það er btw stórskemmtilegt par. Fórum með þeim út að borða á Dalle Valle, fyrir neðan Skt. Petri hótelið. Alltaf 50% af öllum mat þar á laug-mánu. Bananasplittið er GEÐVEIKT. Samt heldur margir Svíjar að vinna þarna..
Djöfull þarf ég samt að komast í klippingu og litun fyrir jól. Þessi músalitur er ekki að gera sig !